Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Blessað barnalán í VMA!

Дата публикации: 22-09-2026 12:21:00

Ungabörn

Основное содержимое страницы с новостью.

Starfsmennirnir fimm með börn sín. Frá vinstri: Björn Benedikt með Björn Heiðar, Sigríður Diljá með …

Starfsmennirnir fimm með börn sín. Frá vinstri: Björn Benedikt með Björn Heiðar, Sigríður Diljá með óskírða dóttur sína, Atli Freyr með Eírík Atlas, Íris með Matthildi Ýri og Sólveig Birna með Elísabetu Rut.

Frjósemi á Íslandi hefur minnkað umtalsvert á síðustu áratugum. Árið 1960 var frjósemin 4,2 börn á konu, ártug síðar var talan 3,1 barn, 1980 var talan 2,4 börn á konu, árið 2021 var talan 1,90 barn á konu og 2024 og 2025 var talan 1,56 barn á konu, lægsta frjósemistala á Íslandi í sögunni.

Ef horft er til fæðingadeildar Sjúkrahússins á Akureyri fæddust 389 börn á árinu 2025 og fækkaði um átta börn frá fyrra ári. En það sem af er þessu ári hefur orðið ánægjulegur viðsnúningur. Ríkisútvarpið greindi frá því 11. júní sl. að þá hefði 210. barnið fæðst á SAk, 56 fleiri börn höfðu þá fæðst en á sama tíma árið 2025 eða 36% fjölgun.

Starfsmenn VMA hafa ekki látið sitt eftir liggja í barneignum það sem af er þessu ári. Fimm starfsmenn hafa eignast börn frá ársbyrjun og var þeim fagnað í starfsmannakaffi í dag, á námsmatsdegi, og börnunum færðar gjafir.

Svo mikið er víst að ár og dagur er síðan svo margir starfsmenn VMA hafa verið í fæðingarorlofi á sama tíma. 

Börnin eru:

Björn Heiðar Björnsson f. 20. júlí 2026
Foreldrar: Björn Benedikt Björnsson, kennari starfsbrautargreina, og Heiða Björg Kristjánsdóttir

Óskírð Gunnarsdóttir f. 16. júlí 2026 (verður skírð nk. laugardag)
Foreldrar: Sigríður Diljá Vagnsdóttir íslenskukennari og Gunnar Theódór Úlfarsson

Eiríkur Atlas Atlason f. 13. júní 2026
Foreldrar: Atli Freyr Einarsson, kerfisstjóri og stærðfræðikennari, og Sóley Ásta Sigvaldadóttir

Matthildur Ýr Sverrisdóttir f. 16. janúar 2026
Foreldrar: Íris Arngrímsdóttir, kennari vélstjórnargreina, og Sverrir Már Sverrisson.

Elísabet Rut Sólveigardóttir f. 31. júlí 2026
Móðir: Sólveig Birna H. Elísabetardóttir, viðburðastjóri VMA

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1Viljayfirlýsing mennta- og barnamálaráðherra og bæjarstjórans á Akureyri um viðbyggingu við VMA05.6218-09-2026
2Héðinn Unnsteinsson með fyrirlestur í VMA06.6918-09-2026
3Vélstjórnarnemar í hvalaskoðun08.411-09-2026
4Vélstjórnin hefur mikið aðdráttarafl01021-09-2026
5Hendur í hári meistara08.9815-09-2026
6Ómar Magni er yngsti nýsveinninn í rafvirkjun á Íslandi!06.9426-09-2026
7Höfðinglegt boð Skógarbaðanna01014-09-2026
8Sex þreyttu sveinspróf í vélvirkjun05.4324-09-2026
9Ritlistakvöld fyrir ungt fólk á Lyst 7. október017.1425-09-2026
10Dagskrá íþróttaviku Evrópu í VMA06.8223-09-2026

Классификация: . Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 10. Тональность: 0. Информативность: 7.56. Источник: www.vma.is.