Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Ómetanleg gjöf frá Johan Rönning

Дата публикации: 25-09-2026 07:00:00

Rönning

Основное содержимое страницы с новостью.

Eitt og annað ómetanlegt kom upp úr gjafakössum Rönning. Héru eru Ágúst Axelsson, viðskiptastjóri J.…

Eitt og annað ómetanlegt kom upp úr gjafakössum Rönning. Héru eru Ágúst Axelsson, viðskiptastjóri J. Rönning, Andrea M. Þorvaldsdóttir kennari og Ásta F. Flosadóttir aðstoðarskólameistari. Að baki þeim eru nokkrir nemendur í grunndeild rafiðna í VMA.

Það er gott að eiga góða að. Það sannaðist enn eina ferðina í þessari viku þegar Ágúst Axelsson, viðskiptastjóri Johan Rönning á Akureyri, kom með nokkra kassa af rafgóðgæti af ýmsum toga og færði rafiðnbraut VMA að gjöf frá Johan Rönning. Gjöfinni veittu viðtöku Andrea Margrét Þorvaldsdóttir, kennari á rafiðnbraut, og Ásta F. Flosadóttir, aðstoðarskólameistari VMA.

Ekki þarf að hafa um það mörg orð að innihald kassanna kemur að afar góðum notum og nýtist í kennslu nemenda frá fyrstu önn til þeirrar síðustu á rafiðnbraut.

Það sem kom upp úr gjafakössunum frá Rönning er:

3 DeWalt hleðsluborvélar.
1 DeWalt hitabyssa.
100 endastopp
100 endaplötur
450 raðtengi
10 tvöfaldir plejd dimmar
10 einfaldir plejd dimmar
10 plejd relay
10 tvöföld plejd relay
4 plejd hitastillar
2 samskiptabrýr
4 rafhlöðubankar
4 innfelld plejd ljós
3 niplatangir
3 gráðusköfur
48 pör af vinnuvettlingum
Tengibrýr í raftengi

Það er rafiðnbraut og Verkmenntaskólanum ómetanlegt að fá slíkan stuðning úr atvinnulífinu. Fyrir hann og þessa höfðinglegu gjöf færir skólinn Johan Rönning innilegar þakkir.

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1Ómar Magni er yngsti nýsveinninn í rafvirkjun á Íslandi!06.9426-09-2026
2Vélstjórnin hefur mikið aðdráttarafl01021-09-2026
3Viljayfirlýsing mennta- og barnamálaráðherra og bæjarstjórans á Akureyri um viðbyggingu við VMA05.6218-09-2026
4Sex þreyttu sveinspróf í vélvirkjun05.4324-09-2026
5Blessað barnalán í VMA!07.5622-09-2026
6Dagskrá íþróttaviku Evrópu í VMA06.8223-09-2026
7Ritlistakvöld fyrir ungt fólk á Lyst 7. október017.1425-09-2026
8314 þúsund brottfarir erlendra ferðamanna í ágúst015.2110-09-2026
9Kynntu Norrænu nemakeppnina og EuroSkills 08.8828-09-2026
10Atvikavaktin - örnámskeið fyrir ferðaþjónustuaðila09.8718-09-2026

Классификация: . Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 10. Тональность: 0. Информативность: 9.15. Источник: www.vma.is.